Svitna til góðs á Hressleikum 5. nóvember 2010 15:00 Linda Björk Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri Hress hvetur fólk til að styrkja gott málefni og svitna til góðs. fréttablaðið/anton „
Við ætlum að reyna að ná tvö hundruð manns á leikana. Við búumst fastlega við því að við náum því," segir Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress. Á laugardaginn verða Hressleikarnir haldnir í Dalshrauni í Hafnarfirði. Þátttakendum verður skipt í átta lið eftir mismunandi litum og munu þeir svitna til góðs í hinum ýmsu greinum, þar á meðal Body attack, Hot Yoga, Zumba, Tabata og stöðvaþjálfun. Plötusnúðurinn Júlli í Júlladiskói þeytir skífum og heldur uppi góðri stemningu. „Við höfum oft haldið Hressleikana en fyrir tveimur árum þegar kreppan skall á breyttum við þessu í árlegan viðburð," segir Linda Björk. „Í fyrra ákváðum við að breyta þessu í góðgerðaviðburð líka og söfnuðum fyrir Rebekku Maríu, sem hafði misst foreldrana sína með stuttu millibili. Það sem toppaði daginn í fyrra var að hún eignaðist son sama dag. Það var ótrúlega gaman að geta sagt frá því í lokin á Hressleikunum." Í þetta sinn rennur allur ágóði leikanna til íþrótta- og afrekssjóðs sem var stofnaður til að heiðra minningu Hrafnkels Kristjánssonar, sem lést í bílslysi í desember síðastliðnum. „Við reynum að hafa þetta tengt Hafnarfirði og Hrafnkell var viðskiptavinur hjá okkur. Þessi minningarsjóður er bæði fyrir börnin hans og önnur börn í Hafnarfirði sem þurfa á íþróttastyrk að halda," segir Linda. Skráningargjald er 1.000 krónur og Hressleikarnir standa yfir frá 9.30 til 11.30. Þeir sem ekki komast geta lagt inn á reikninginn 135-05-071304 - kt. 540497-2149.- fb
Mest lesið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Fleiri fréttir „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Sjá meira