Lífið

Svitna til góðs á Hressleikum

Linda Björk Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri Hress hvetur fólk til að styrkja gott málefni og svitna til góðs. fréttablaðið/anton
Linda Björk Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri Hress hvetur fólk til að styrkja gott málefni og svitna til góðs. fréttablaðið/anton
„Við ætlum að reyna að ná tvö hundruð manns á leikana. Við búumst fastlega við því að við náum því," segir Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress.

Á laugardaginn verða Hressleikarnir haldnir í Dalshrauni í Hafnarfirði. Þátttakendum verður skipt í átta lið eftir mismunandi litum og munu þeir svitna til góðs í hinum ýmsu greinum, þar á meðal Body attack, Hot Yoga, Zumba, Tabata og stöðvaþjálfun. Plötusnúðurinn Júlli í Júlladiskói þeytir skífum og heldur uppi góðri stemningu.

„Við höfum oft haldið Hressleikana en fyrir tveimur árum þegar kreppan skall á breyttum við þessu í árlegan viðburð," segir Linda Björk. „Í fyrra ákváðum við að breyta þessu í góðgerðaviðburð líka og söfnuðum fyrir Rebekku Maríu, sem hafði misst foreldrana sína með stuttu millibili. Það sem toppaði daginn í fyrra var að hún eignaðist son sama dag. Það var ótrúlega gaman að geta sagt frá því í lokin á Hressleikunum."

Í þetta sinn rennur allur ágóði leikanna til íþrótta- og afrekssjóðs sem var stofnaður til að heiðra minningu Hrafnkels Kristjánssonar, sem lést í bílslysi í desember síðastliðnum. „Við reynum að hafa þetta tengt Hafnarfirði og Hrafnkell var viðskiptavinur hjá okkur. Þessi minningarsjóður er bæði fyrir börnin hans og önnur börn í Hafnarfirði sem þurfa á íþróttastyrk að halda," segir Linda.

Skráningargjald er 1.000 krónur og Hressleikarnir standa yfir frá 9.30 til 11.30. Þeir sem ekki komast geta lagt inn á reikninginn 135-05-071304 - kt. 540497-2149.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.