Innlent

Stjórnarþingmaður segir sig úr starfshópi um ríkisfjármál

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir. Mynd/Pjetur
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur sagt sig úr hópi um ríkisfjármál vegna óánægju með áform um frekari niðurskurð í ríkisfjármálum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Lilja segir að verkefni hópsins hafi verið skilgreint of þröngt. Hópurinn hafi einungis átt að koma með tillögur um niðurskurð. Hún er ósatt við það og því ákvað hún að segja sig úr starfshópnum.

Þá segir Liljar afar óheppilegt að flokksbróðir hennar, Björn Valur Gíslason, hafi tilkynnt fyrir helgi um skattatillögur ríkisfjármálahópsins áður en þær hafi verið ræddar innan ríkisstjórnarflokkanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×