Nýtt útisvæði við sundlaugina í Eyjum tekið í notkun Gísli Óskarsson skrifar 23. maí 2010 10:57 Mynd/Gísli Óskarsson
Nýtt útisvæði var tekið formlega í notkun við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í gær að viðstöddu fjölmenni. Nú geta þeir sem sækja sundlaugina í Vestmannaeyjum farið í sjóðandi heitt gufubað, skellt sér í nuddpott og aðra heita potta sem þar er að finna á svæðinu. Þeir sem hafa hug á klettaklifri geta líka notið sín. Fari svo að mönnum verði handa- eða fótaskortur í klifrinu verður lendingin mjúk í volgri vatnstjörn sem er undir klifurstaðnum. Þá er að finna fimm vatnsrennibrautir á svæðinu. Ein þeirra liggur á leiksvæði barnanna. Þrjár brautanna eru nokkurs konar hraðrennibrautir þar sem brunfólkið sendist með ógnarhraða út í djúpa laug. Fimmta brautin er trampólínrennibraut sem samanstendur af víðu röri, hallandi trampólíni og vatnslaug. Þessi rennibraut virðist vera sú vinsælasta hjá eldri krökkunum.Mynd/Gísli ÓskarssonVið hönnun útivistarsvæðisins var tekið með í reikninginn það gagnaðist sérstaklega börnum og barnafjölskyldum og foreldrar ættu auðvelt með að fylgjast með börnum sínum. Þá átti svæðið að endurspegla menningu og náttúru Vestmannaeyja. Upphaflegar kostnaðar áætlanir gerðu ráð fyrir því að kostnaður við útivistar svæðið yrði 113 milljónir króna, en bankahrunið og gengisfall krónunnar setti strik í reikninginn og fer kostnaðurinn við gerð og hönnun að öllum líkindum upp í 270 milljónir króna þegar öll kurl verða komin til grafar.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira