Vantraustyfirlýsing á lögfræðing Seðlabanka Íslands 8. ágúst 2010 18:53
Seðlabankastjóri gerir lítið úr aðallögfræðingi bankans, sem var sammála niðurstöðu lögfræðiálits um sennilegt ólögmæti gengislánanna, en bankinn þagði þunnu hljóði um niðurstöðuna. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökum heimilanna sem telur framferðið í raun vantraustsyfirlýsingu á lögfræðinginn. Lögfræðiálit sem Seðlabanki Íslands fékk frá lögmannstofunni LEX 12. maí á síðasta ári benti til að sennilega voru gengistryggð lán ólögleg. 13 mánuðum síðar dæmdi Hæstiréttur að lánin væru ólögleg. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði við fréttastofu í gær að hvorki bönkum né skilanefndum hafi verið kynntar niðurstöður álitsins. Álitið barst seðlabankanum um svipað leyti og samningaviðræður um uppgjör eigna gömlu bankanna stóðu sem hæst. Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, segir lögfræðiálitið hefði átt að vera birt almenningi. Hver sem niðurstaðan væri. Hann segir að aðalögfræðingur Seðlabankans hafi verið sammála álitinu, hann sé æðsti lögfræðingur fjármálakerfisins, og hans orð vigti þungt. „Mér finnst pínulítið eins og að Már sé að gera lítið úr lögfræðingnum og í raun er þetta vantraust yfirlýsing á aðallögfræðingi Seðlabanka Íslands," segir Marinó. Marinó segir seðlabankastjóri hafi sagt að hans álit sé til jafns við annarra lögfræðinga. En hvaða áhrif hefði það haft ef lögfræðiálitið hefði verið birt opinberlega? „Það hefði verið hægt að undirbúa þjóðfélagið fyrir það högg sem hugsanlegur dómur myndi verða," segir Marinó. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði við fréttasofu að Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra hafi ekki komið hreint fram þegar þingmenn spurðu hann hvort ráðuneytið hafi gert lögfræðiálit um lögmæti gengistryggðra lána. Hann hafi ætíð sagt nei en Már hefur upplýst að umrætt löfræðiálit hafi verið sent viðskiptaráðuneytinu. Gylfi Magnússon viðskiptráðherra sagði í sms-skeyti til fréttastofu að málið verði skoðað í ráðuneytinu eftir helgi. Annað vildi hann ekki segja.
Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Erlent Fleiri fréttir Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Sjá meira