Innlent

Kona slasaðist við hellaskoðun í Eldhrauni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar.
Björgunarsveitin Kyndill á Kirkjubæjarklaustri er nú á leið að Miklafelli í Eldhrauni til aðstoðar konu sem slasaðist þegar að hún var í hellaskoðun á svæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hlaut konan höfuðáverka við fallið en ekki er á þessari stundu vitað um hversu alvarlegir þeir eru. Læknir fer með björgunarsveit á slysstað.

Einnig er búið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar og fara fjallabjörgunarmenn frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu með henni á staðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×