Lífið

Jóna í KvikkFix

jóna heiða sigurlásdóttir
jóna heiða sigurlásdóttir

Síðasta föstudag hófst sýning listakonunnar Jónu Heiðu Sigurlásdóttur, Umbreytingur. Sýningin er í Gallerý KvikkFix, sem er til húsa í betri stofu KvikkFix að Vesturvör 30c í Kópavogi. KvikkFix er alhliða bílaþjónustumiðstöð þar sem mikið er lagt upp úr þægilegu umhverfi fyrir kúnnann að bíða í á meðan bíllinn er tekinn í gegn.

Sýning Jónu Heiðu samanstendur af 18 myndverkum, innsetningu og „Kímera creations", skartgripum hönnuðum og framleiddum af listakonunni sjálfri. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum um land allt en þetta er fyrsta einkasýning hennar á höfuðborgarsvæðinu. Sýningin er opin á opnunartíma KvikkFix alla virka daga frá kl. 8 til 17 og stendur yfir til 9. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.