Þjóðin kýs um hvort lögum verður breytt 6. janúar 2010 05:00 Friðrik Már Baldursson
Innan tíðar verða lög um breytingar á ríkisábyrgð vegna Icesave borin undir þjóðina til synjunar eða samþykktar. Þar fær hún tækifæri til að taka afstöðu til þess hvort þær breytingar sem Alþingi gerði á fyrri lögum um málið, sem samþykkt voru í september, verði grundvöllur samninga við Breta og Hollendinga. Atkvæðagreiðslan gengur þannig ekki út á hvort eigi að greiða skuldbindingar vegna Icesave, heldur hvernig þeim greiðslum verður háttað og hvaða fyrirvarar gilda um þær. Lögfræðingurinn Helgi Áss Grétarsson skrifaði greinargerð sem fylgdi breytingartillögunum. Þar fór hann yfir mismun á ákvæðum viðaukasamninga breytingartillagnanna og ákvæðum laganna frá því í september. Þar sem kjósendur taka afstöðu til breytinganna í þjóðaratkvæðagreiðslunni tók Fréttablaðið saman það helsta úr greinargerð Helga Áss. Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar HR, segir í raun eitt atriði standa upp úr fyrirvörum fyrri laganna, þegar kemur að greiðsluákvæði; greiðslutíminn. Hann telur litlar líkur að komi til þess að taka þurfi afstöðu til meðferðar eftirstöðva eftir árið 2024. Mikið þurfi að gerast til að lánið verði ekki að fullu greitt þá. Hann segir það að mörgu leyti vafamál hvað í raun sé verið að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu. Björg Thorarensen, deildarforseti lagadeildar HÍ, segir lagalega fyrirvara fyrri laganna vera víðtæka, þeir hafi verið mjög afdráttarlaus skilyrði ríkisábyrgðar. Samningunum hafi verið breytt, en hluti fyrirvaranna hafi komið fram í viðaukasamningum og hluti í lögunum sem forsetinn neitaði að undirrita. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira