Umræður um bætt samfélag 10. maí 2010 04:00 Umræðufundur um úrræði gegn fátækt og félagslegri einangrun sátu stjórnmálamenn og fulltrúar sveitarstjórna ásamt fagaðilum félagsþjónustunnar og notendum hennar. Mynd/Hreinn Magnússon
Fátækt rædd á jafnræðisgrundvelli var yfirskrift fundar sem haldinn var á Grand Hóteli í gær. Fundurinn var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, en þar var stefnt saman stjórnmálamönnum, fagfólki í félagsþjónustu og fólki sem upplifað hefur fátækt og félagslega einangrun sjálft. Yfir 80 manns tóku þátt og ræddu í hópum hvernig bæta má stöðu þeirra sem af einhverjum ástæðum standa illa fjárhagslega og félagslega. Meðal annars var fólk sammála um að innræta þyrfti virðingu og umhyggju fyrir samfélaginu. „Það sem stóð upp úr er vilji fólks til að búa í samfélagi þar sem við tökum ábyrgð á hvert öðru og að allir hafi möguleika á að þroska hæfileika sína,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, starfandi formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis. Hún sagði jafnframt niðurstöður fundarins mikilvægt veganesti í vinnu stjórnvalda og fagfólks innan félagsmálageirans. Margrét Einarsdóttir, eigandi nuddstofu í Reykjavík, sat fundinn sem talsmaður þeirra sem upplifað hafa fátækt og félagslega einangrun. Hún segir núverandi félagslegt kerfi letjandi. „Þeir sem af einhverjum ástæðum eru á atvinnuleysisbótum eða örorkubótum hafa ekkert svigrúm til dæmis til að prófa viðskiptahugmynd eða auka við menntun sína, án þess að missa bæturnar. Þessu þarf að breyta og gefa fólki tækifæri til að bjarga sér.“ Niðurstöðum fundarins verður komið áleiðis til ráðuneyta og sveitarfélaga af stýrihóp á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis sem stóð að fundinum. - rat
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira