Telur lán Glitnis til barna vera lögbrot 30. október 2009 18:38
Ólögráða barn fékk 24 milljóna króna lán hjá Glitni Hæsta lánið sem barni var veitt fyrir kaupum í stofnfjáraukningu í Byr fyrir tveimur árum nam tuttugu og fjórum milljónum króna. Lögbrot segir umboðsmaður barna, mistök segir bankastjóri Íslandsbanka. Glitnir fjármagnaði 30 milljarða stofnfjáraukningu í Byr haustið 2007. Að minnsta kosti 10 börn voru skrifuð fyrir lánum hjá Glitni, lægsta lánið var upp á tvær milljónir en hæsta lánið var 24 milljónir króna samkvæmt upplýsingum frá ÍSlandsbanka. Ekki hafa fengist upplýsingar um aldur barnsins sem skráð var fyrir því. Öll börnin voru meðal stofnfjáreigenda í Byr og áttu forkaupsrétt í stofnfjáraukningunni. Heimildir herma að flest þeirra séu börn annarra stofnfjáreigenda í sparisjóðnum. Íslandsbanki hefur lýst því yfir að umrædd lán verði ekki innheimt. Margrét María Sigurðardóttir, Umboðsmaður barna, furðar sig á því hvernig þetta gat verið samþykkt. „Í mínum huga er þetta hreint og beint lögbrot. Mér finnst þetta ámælisvert að hálfu bankans og foreldranna," segir Margrét María. Fáeinir foreldrar báðu sýslumannsembættin í Reykjavík og Hafnarfirði um að samþykkja að kaup barna þeirra á stofnfé í Byr yrðu fjármögnuð með lánsfé. Ekkert erindanna var samþykkt. Samt sem áður virðast foreldrar hafa farið gegn áliti sýslumanns. Samkvæmt lögræðislögum þarf samþykki yfirlögráðanda að liggja fyrir um slíka gerninga. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanki, segir marga bera ábyrgð í þessu máli. Foreldrar og starfsmenn Glitnis. „Já ég myndi segja að þetta væru mistök og við hörmum þetta. Við erum búin að ógilda þessa gjörninga af því að við sjáum að þarna var ekki staðið rétt að málum," segir Birna.
Tengdar fréttir Ætla ekki að innheimta ofurlán hjá börnum Dæmi eru um að Glitnir hafi veitt börnum há lán til stofnfjárkaupa í Byr sparisjóði. Tólf ára barn fékk slíkt lán upp á sex milljónir króna. Tugir stofnfjáreigenda undirbúa málsókn á hendur Íslandsbanka vegna lánanna. 29. október 2009 12:11 Mest lesið Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira
Ætla ekki að innheimta ofurlán hjá börnum Dæmi eru um að Glitnir hafi veitt börnum há lán til stofnfjárkaupa í Byr sparisjóði. Tólf ára barn fékk slíkt lán upp á sex milljónir króna. Tugir stofnfjáreigenda undirbúa málsókn á hendur Íslandsbanka vegna lánanna. 29. október 2009 12:11