Þjóðin er tortryggin gagnvart ESB 15. september 2009 15:06 Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, og Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna. „
Þessi skoðanakönnun staðfestir það sem við vissum áður; að það er mikill meirihluti þjóðarinnar sem er á móti aðild," segir formaður Heimssýnar, Ragnar Arnalds um nýja skoðanakönnun Gallups-Capacent sem var gerð fyrir Samtök iðnaðarins. Þar kemur fram að andstaða við aðild að ESB hafi aldrei verið meiri. Formaður Evrópusamtakanna, Andrés Pétursson, segir umræðuna um Icesave hafa mikil áhrif á niðurstöðuna og viðhorf Íslendinga til Evrópusambandsins. Könnunin, sem Samtök Iðnaðarins létu gera fyrir sig, sýnir að um 50% svarenda segjast andvígir aðild en um 33% segjast hlynntir. Niðurstaðan gegn aðild hefur aldrei verið jafn afgerandi. Andstaða í samræmi við fyrri skoðanakannanir Ragnar, sem er andvígur aðild að ESB, segir niðurstöðuna vera í fullu samræmi við fyrri niðurstöður skoðanakannanna. Hann segir fylgið með og á móti þó sveiflukennt og bendir á að í miðju hruninu hafi almenningur verið jákvæður gagnvart inngöngu í Evrópusambandið. Það hafi hinsvegar breyst eftir áramót. Spurður hvort umræðan um Icesave hafi haft mikil áhrif, segir Ragnar að það hafi hugsanlega spilað einhverja rullu, „það var náttúrulega Evrópusambandið sem vildi troða þessum samningum ofan í okkur," segir Ragnar sem kvíðir ekki hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Icesave um að kenna „Þessar niðurstöður koma ekkert á óvart miðað við þær umræður sem voru í gangi þegar könnunin var gerð," segir Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, en könnunin var framkvæmd dagana 25. ágúst til 10. september 2009. Þá stóðu umræðurnar um Icesave hvað hæst. Andrés segir að umræðan um Icesave hafi á stundum verið beintengd við ESB sem honum þykir ómaklegt. Sjálfur stendur Andrés í þeirri von að þegar umræðan róist þá átti menn sig betur á því hvað aðild að ESB gengur út á. Hann telur að með upplýstari umræðu snúist dæmið við. „Þá fara menn fyrst og fremst að hugsa út í það hvernig má hjálpa okkur út úr þessari lægð. ESB er ein leið samþætt af mörgum," segir Andrés en viðurkennir að almenningur er tortrygginn gagnvar ESB þessa daganna. Þrjú ár í kosningar Hann segir langt í kosningar um inngöngu í ESB. Sjálfur telur hann að þær verði ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjú ár. „Þetta er langhlaup," segir Andrés vongóður um að þjóðin taki ESB opnari örmum í framtíðinni.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira