Persónuvernd veiti leyfi 15. september 2009 08:00 Gagnagrunnur Jóns Jósefs Bjarnasonar sýndi að feðgarnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson voru tengdir á 809 vegu í íslensku viðskiptalífi.
Ríkisskattstjóri segir að mistök hafi valdið því að Jón Jósef Bjarnason tölvunarfræðingur fékk aðgang að fyrirtækjaskrá til þess að búa til gagnagrunn með myndrænum upplýsingum um tengsl manna í viðskiptalífinu. Persónuvernd hefur málið nú til meðferðar. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að vaninn sé að skoða mál af þessu tagi vandlega og bera þurfi þau undir Persónuvernd. Umsókn Jóns Jósefs, sem er fyrrverandi starfsmaður Ríkisskattstjóra, fór ekki í gegnum hefðbundið ferli hjá embættinu. Jón Jósef Bjarnason sagði við Fréttablaðið að hann hefði gert samning við embætti Ríkisskattstjóra í byrjun september og greitt 180.000 króna leyfisgjald. „Þeir gáfu mér aðgang og ég taldi að við hefðum sama skilning á að það væri tilkynningarskylt til Persónuverndar en ekki leyfisskylt,“ sagði hann og sagði að sér þætti það dónaskapur að hann hefði ekki verið látinn vita áður en vefþjónustunni var lokað strax eftir að fréttir birtust í fjölmiðlum með upplýsingum úr gagnagrunninum um tengsl viðskiptajöfra. Hann bíður nú niðurstöðu frá Persónuvernd. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, sagði að umsókn vegna málsins hefði borist 3. september. Afstaða lægi ekki fyrir til þess hvort Jón Jósef þyrfti starfsleyfi. Lánstraust og fleiri aðilar sem miðla upplýsingum úr viðskiptalífinu hafa þurft starfsleyfi frá Persónuvernd. Gagnagrunnur Jóns Jósefs er nýkominn til sögunnar en Fjármálaeftirlitið hefur þó keypt aðgang að honum til afnota á innra neti sínu.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira