Arnkötludalur álíka stytting og Hvalfjarðargöng 16. september 2009 12:10
Vestfirðingar bíða þess nú spenntir að geta ekið samfellt á malbiki milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Lagning bundins slitlags á nýja veginn um Arnkötludal er ríflega hálfnuð og vonast verktakinn til að verkinu ljúki á næstu átta til níu dögum.Hinn 25 kílómetra langi vegur um Arnkötludal, milli Gilsfjarðar og Steingrímsfjarðar, mun marka þáttaskil í vegamálum, og þá mest fyrir byggðir á norðanverðum Vestfjörðum, Ströndum og Dalasýslu. Samgöngubótunum fyrir fólk á svæðinu má jafnvel líkja við Hvalfjarðargöngin enda fæst álíka mikil leiðastytting. Þannig styttist leiðin milli Reykjavíkur og Hólmavíkur um 40 kílómetra með Arnkötludal og sömuleiðis vetrarleiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur auk þess sem þau tímamót verða að leiðin verður öll komin með samfellt malbik.Ingileifur Jónsson verktaki og hans menn kappkosta þessa dagana að klæða veginn og eru nú búnir að leggja slitlag á 13 kílómetra af þessum 25, þar á meðal á erfiðustu kaflana sem liggja hæst, og eiga þeir nú bara eftir dalinn næst Hólmavík, sjálfan Arnkötludal. Ingileifur segir að enn standi það sem áður var sagt, að vegurinn verði opnaður fyrir mánaðamót, en segir það skýrast betur í lok þessarar viku. Hann segir þó að ef ekki verði miklar rigningar eigi lagning slitlagsins að klárast á næstu átta til níu dögum, - það er í kringum 25. september.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira