Enski boltinn

England vann Slóveníu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lampard fagnar marki sínu.
Lampard fagnar marki sínu.

Enska landsliðið vann í kvöld 2-1 sigur á Slóveníu í vináttulandsleik á Wembley. Frank Lampard og varamaðurinn Jermain Defoe skoruðu mörk enska liðsins.

Lampard kom Englandi yfir með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að dómarinn taldi Bostjan Cesar hafa togað Wayne Rooney niður í teignum. Vafasamur dómur en margir saka Rooney um að hafa verið með leikaraskap.

Rooney átti skot í tréverkið áður en Defoe skoraði annað mark Englands með skoti fyrir utan teig. Zlatan Ljubijankic minnkaði muninn fyrir Slóvena en það mark dugði skammt.

England leikur gegn Króatíu í undankeppni HM á miðvikudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×