Innlent

Hichem fékk sér súpu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mansri Hichem er hættur í hungurverkfalli.
Mansri Hichem er hættur í hungurverkfalli.
„Ég hef það ágætt núna. Ég byrjaði að borða aftur í gærmorgun," segir Mansri Hichem, flóttamaðurinn sem hefur verið í hungurverkfalli á Suðurnesjum að undanförnu.

Útlendingastofnun synjaði Hichem um pólitískt hæli og þá ákvörðun kærði hann til dómsmálaráðuneytisins. Hann gagnrýnir mjög hve langan tíma málsmeðferðin hefur tekið og svelti sig til að mótmæla því.

Hichem segist allur vera á batavegi en hann hafði neitað sér um mat í meira en þrjár vikur þegar að hann byrjaði að borða. Hichem segist einungis borða léttmeti en ekkert sem sé þungt í maga. Það fyrsta sem hann hafi fengið sér eftir hungurverkfallið hafi verið súpa.

Hera Einarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Reykjanesbæ, segir að mál Hichems séu komin til flýtimeðferðar í ráðuneytinu og hann hafi væntingar um að afgreiðsla þess taki ekki of langan tíma þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×