Rökræður og þolinmæði sterkustu vopn lögreglu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 30. júlí 2009 20:40 Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/Vilhelm
Mótmæli ársins 2008 eru fyrirferðarmikil í nýrri ársskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í henni er talað um þær breytingar sem urðu á íslensku samfélagi á haustmánuðum 2008 og fjallað um mótmæli bæði vörubílstjóra og almennings í miðbæ Reykjavíkur. Í skýrslunni segir sjaldan hafa reynt jafn mikið á lögregluna og á síðasta ári. Í ávarpi Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra, kemur fram að leiðarljós lögreglunnar hafi verið að haga inngripum lögreglu þannig að þau sköpuðu ekki meiri vanda en þann sem leysa þurfti í hvert sinn. Sterkustu vopn lögreglunnar hafi reynst rökræður og þolinmæði, sem endranær, en Stefán segir þá aðferðafræði hafa gengið upp. Í skýrslunni er jafnframt fjallað um markmiðasetningu lögreglunnar. Meðal þess sem stóð til á árinu var að fækka glæpum um fimm prósent miðað við meðaltal síðustu ára. Það hafi ekki tekist, en hins vegar hafi slysum á vegfarendum fækkað líkt og að var stefnt. Þá er því trausti sem lögreglan nýtur fagnað. Ofbeldisbrot á árinu voru 770, þar af hundrað alvarleg. Árásir á lögreglu voru skráðar um sextíu talsins. Í skýrslunni er sérstaklega tiltekið hversu útbreidd notkun barefla virðist vera. Um 170 mál komu til rannsóknar kynferðisbrotadeildar. Þar af voru brot gegn börnum algengust, en þau voru um fimmtíu talsins. Barnaklámsmál voru 24, en sum þeirra voru afar umfangsmikil og töldu yfir tíu þúsund ósæmilegar myndir af börnum. Þá er sér kapítúli um umfangsmikil fíkniefnamál og eru þar fyrirferðamest húsbílasmyglið á Seyðisfirði, auk aðgerðar Einstein - fíkniefnaverksmiðjunnar sem upprætt var í Hafnarfirði. Í rekstarhluta skýrslunnar kemur fram að rekstur embættisins hafi verið afar erfiður vegna hækkana á nær öllum sviðum sem snúa að almennum rekstri, sem hafi verið langt umfram viðbótarfjárveitingar. Stærstur hluti rekstrarkostnaðar embættisins er launakostnaður. Rekstarhalli embættisins á árinu var tæpar 98 milljónir. Ársskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu má í heild sinni nálgast hér.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira