Bjarni Guðjónsson: Svekkjandi að spila ekki sæmilegan leik Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 30. júlí 2009 22:03 Bjarni Guðjónsson Mynd/E. Stefán
Bjarni Guðjónsson segir ekki gaman að taka þátt í keppnum nema til þess að sigra þær og er Evrópukeppnin engin undantekning þó sigurlíkur séu litlar. "Það eru kaflar í þessum leik sem eru ekki eins við vildum en hinir tveir leikirnir gengu nánast fullkomlega upp hjá okkur, að liggja aftarlega og beita skyndisóknum. Við vorum með þá í fyrri hálfeik og þá gekk herbragðið fullkomlega upp en svo missum við einbeitinguna undir lokin á þessum leik. Þetta er mikið sterkara lið en Larissa og refsa okkur þegar við gerum mistök," sagði Bjarni eftir jafnteflið gegn Basel í kvöld. "Við erum í því að elta því við erum eiginlega ekkert með boltann.Það er það sem er svo svekkjandi í þessu því við spilum ekki nálægt því okkar besta leik en gerum samt, 2-2, jafntefli við þá. Því hugsum við, hvað hefðum við geta gert hefðum við spilað sæmilegan leik, með því að halda hreinu og halda boltanum betur því það var það sem við ætluðum að gera hérna heima." "Þeir ætla væntanlega ekki að taka jafntefli heima með væntanlega fullt hús hjá sér. Þeir ætla að taka litla liðið frá Íslandi og vinna það og ég held að styrkur okkar gæti falist í því að þeir ætla að vinna. Við ætlum ekki að pressa þá heldur liggja til baka en það er fullt af möguleikum. Við sjáum það í seinni hálfleik þegar við skjótum fyrir utan teig þegar við hefðum hugsanlega getað tekið eina sendingu í viðbót." "Mér fannst vanta ákveðna trú í seinni hálfleik, að við gætum unnið þá. Það vantaði ekki sjálfstraust en það vantaði þá trú sem var gegn Larissa þegar við fundum að við vorum með þá í þeim leikjum. Við urðum betri er leið á leikina þar en það fór í öfuga átt í þessum leik. Við vitum það samt að við spiluðum ekki okkar besta leik en gerðum samt jafntefli þannig að það er allt hægt enn," sagði Bjarni að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjör: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Sjá meira