Stjórnarandstaða efast um álit Seðlabankans 21. júlí 2009 04:45 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Stjórnarandstaðan vill að hagfræðistofnun Háskóla Íslands geri óháða úttekt á fylgigögnum fjármálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands, í skýrslu um Icesave-málið. Þetta kemur fram í sameiginlegri beiðni minnihlutans í fjárlaganefnd um frekari rannsókn, gögn og gesti sem stjórnarandstaðan lagði sameiginlega fram á fundi nefndarinnar í gær. Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, segir fyllstu ástæðu til að hlutlaus aðili skoði álit Seðlabankans og þann talnagrunn sem þar er notaður. Spurður hvort Seðlabankinn sé ekki hlutlaus, segir hann svo vera. En fyllsta ástæða sé til að rýna í allt. Álitið hafi verið unnið af miklum hraða og þar séu ýmis álitaefni. Stjórnarandstaðan leggur einnig til að Davíð Oddsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra, verði boðaðir á fund nefndarinnar til að hægt sé að varpa ljósi á hvort íslensk stjórnvöld hafi skuldbundið sig til greiðslu vegna Icesave-samninganna í kringum bankahrunið. Þá vill stjórnarandstaðan fá fleiri gesti á sinn fund, meðal annars til að ræða hugmyndir Ragnars Hall og Eiríks Tómassonar. Þá óskar minnihlutinn eftir ýmsum gögnum, bæði innlendum og erlendum. Kristján segir að til dæmis hafi ekki borist svör frá Seðlabankanum við skriflegum spurningum. „Þetta er óskalisti miðað við stöðuna eins og hún var í morgun [í gær] og við óskum eftir að stjórnarmeirihlutinn taki tillit til hans," segir Kristján. Listinn er tilkominn að ósk formanns nefndarinnar, Guðbjarts Hannessonar, frá því fyrir helgi. Guðbjartur segir að reynt sé að ná samstöðu um afgreiðslu nefndarinnar og mikilvægt sé að stjórnarandstaðan axli sameiginlega ábyrgð vegna málsins. Hann segir að reynt verði að koma til móts við beiðni stjórnarandstöðunnar að einhverju leyti. Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að æ minni líkur séu á að samstaða náist um málið á þingi. Því sé það stjórnarinnar að staðfesta frumvarpið, gegn vilja stjórnarandstöðunnar.- kóp
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira