Slá pólitískar keilur í stað þess að gæta hagsmuna Íslendinga 23. nóvember 2009 12:44 Eiríkur Bermann, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Mynd/Stefán Karlsson
Íslenskir stjórnmálamenn hafa frekar haft áhuga fyrir því að slá pólitískar keilur í Icesave málinu heima fyrir en að gæta hagsmuna Íslendinga á erlendum vettvangi segir dósent. Hann bendir á að eðli EES-samstarfsins sé þannig að Íslendingar hefðu átt að fá sambærileg lánskjör á Icesave skuldbindingunum og þau sem Bretar og Hollendingar fjármagni sig á. Daniel Gros, hagfræðingur og bankaráðsmaður Seðlabanka Íslands segir í álitsgerð sem Morgunblaðið greinir frá í dag að ef jafnræðisregla samningsins um Evrópska efnahagssvæðið gilti þyrfti íslenska ríkið að greiða Bretum milljarði evra, eða 185 milljörðum króna minna í vexti af Icesave láni. Gros varpar fram þeirri spurningu hvort Bretum og Hollendingum í samræmi við jafnræðisregluna beri að veita Íslendingum sömu lánskjör og eigin tryggingarsjóðum. Eiríkur Bermann, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, segir að eðli samstarfsins sé þannig að hægt sé að halda því fram að Íslendingar hefðu átt að fá sambærileg lánskjör og þau sem Bretar og Hollendingar fjármagni sig á. „Hér virðist eins og Íslendingar hafi sjálfir sett sig í þá stöðu að vera meðhöndlaðir eins og utanaðkomandi aðila væri að ræða. Eins og að íslenska ríkið væri einkabanki á markaði. Þannig að við létum svolítið spila með okur út í horn í þessu máli," segir Eiríkur. Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir ekkert hæft í frétt Morgunblaðsins. Erfitt sé að átta sig á hvaða jafnræðisreglu sé verið að vísa til. Ekki sé til nein allsherjarjafnræðisregla en þær reglur sem gildi innan EES séu fyrst og fremst varðandi samkeppnisstöðu. „Það er klassísk afstaða margra íslenskra embættis- og stjórnmálamanna til Evrópusamstarfsins að hald það lagatæknilegt úrvinnsluefni þegar það er það auðvitað alls ekki. Evrópusamstarfið er fyrst og fremst pólitískt samstarf," segir Eiríkur sem bendir að málið snúist fremur um að vísa til almennra samstarfsreglna þar sem skýrt komi fram að bannað sé að mismuna eftir ríkisfangi. „Satt að segja hefur mér fundist íslenskir stjórnmálamenn hafa frekar haft áhuga á því að slá pólitískar keilur í þessu máli heima fyrir heldur en að gæta hagsmuna Íslendinga á erlendum vettvangi," segir Eiríkur.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira