Óhóflegt vinnuálag getur ógnað fagmennsku Magnús Már Guðmundsson skrifar 23. nóvember 2009 15:40 Óhóflegt vinnuálag og skerðing á sí- og endurmenntun starfsfólks eru meðal þess sem ógnað getur fagmennsku, að mati formanns BHM. Mynd/Stefán Karlsson
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, segir að erfitt sé að boða umtalsverðan niðurskurð hjá hinu opinbera og á sama tíma segja að þjónustan muni haldast óskert. Hún telur brýnt að ræða hvort það sé verjandi að hið opinbera haldi uppi þjónustu sem sé hætt að standa undir nafni. „Það er okkar ábyrgð að fylgjast með því að fagfólki sé gert kleift að sinna því starfi sem því er skylt. Lög og siðareglur móta viðmið sem fagfólki ber að hlíta," segir Guðlaug. Óhóflegt vinnuálag og skerðing á sí- og endurmenntun starfsfólks eru meðal þess sem ógnað getur fagmennsku. BHM og Stofnun stjórnsýslufræða HÍ standa fyrir málþingi á morgun sem ætlað er að vekja athygli á skyldum sérhæfðra fagstétta gagnvart skjólstæðingum, samfélaginu og sjálfum sér og mikilvægi þess að þeim sé gert kleift að rækja þessar skyldur á niðurskurðartímum. Aðhald í rekstri hins opinbera megi ekki verða til þess að draga úr gæðum sérhæfðrar þjónustu. Guðlaug spyr hvort samfélagið þurfi að velta því fyrir sér hversu umfangsmikið velferðarkerfi það hafi efni á að reka. Ráðamenn hafi í langan tíma sagst ætla að spara en um leið að þjónustan muni ekki skerðast. „Í raun er búið að spara svo lengi að maður veltir fyrir sér hvort við getum haldið því áfram án þess að marka línur um hvað þarf undan að láta," segir Guðlaug. Hægt er að lesa nánar um málþingið - Höfum við efni á fagmennsku? - hér.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira