Innlent

Mannlaus ruslabíll veldur stórtjóni

Um klukkan tíu í morgun fór mannlaus ruslabíll frá Gámaþjónustunni að renna niður Lóuás í Hafnarfirði. Bíllinn fór um þrjú hundruð metra niður götuna og keyrði niður ljósastaura, brunahana og garða í götunni. Hann keyrði síðan niður fjóra kyrrstæða bíla og endaði á vegg neðst í götunni.



MYND/Stefán Jónsson

Mikil mildi var að enginn varð fyrir bílnum sem náði talsverðum hraða í þessari för sinni. Rafmagn fór af fimm húsum í götunni og var her manna að hreinsa upp olíu og að gera við ragmagnaði þegar fréttastofu bar að garði.



MYND/Stefán Jónsson
Bílarnir fjórir eru gjörónýtir en eigandi þeirra, Jónatan Garðarsson, segir tjónið hlaupa á tugum milljónum króna. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×