Enski boltinn

Owen dreymir enn um enska landsliðið

Ómar Þorgeirsson skrifar
Michael Owen.
Michael Owen. Nordic photos/AFP

Landsliðsþjálfarinn Fabio Capello horfði enn framhjá framherjanum Michael Owen hjá Manchester United þegar hann valdi 24-manna landsliðhóp Englands fyrir leikina gegn Úkraínu og Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2010.

Hinn 29 ára gamli Owen hefur ekki farið leynt með markmið sitt að komast aftur í enska landsliðið og hann er bjartsýnn á að draumur sinn verði að veruleika.

„Ég er nú að spila fyrir frábært félag sem er í baráttu um titla á öllum vígstöðvum og við skulum sjá hverju það skilar mér. Ég þarf bara að hugsa um að spila vel og skora mörk. Ef ég geri það, þá er góður möguleiki á að ég verði valinn í landsliðið aftur," segir Owen sem hefur leikið 89 landsleiki fyrir England og skorað 40 mörk.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×