Tvö skip gætu skýrt olíubrák á Faxaflóa 21. ágúst 2009 03:30 Goðafoss. Með skipinu fórust 24 Íslendingar og einnig skipbrotsmenn sem um borð voru.
Lýsing staðhátta þar sem eftirlitsflugvél Landhelgis-gæslunnar fann olíubrák á dögunum gæti bent til þess að annað skip en bandaríska varðskipið USCGC Alexander Hamilton liggi þar á hafsbotni, eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær. Hugsanlegt er að í hlut eigi annað skip sem þýskur kafbátur sökkti á stríðsárunum, að mati Gæslunnar. Talið er að lýsingin geti einnig átt við um breska olíuskipið Shirvan sem þann 10. nóvember 1944 varð fyrir sprengjuárás þýska kafbátsins U-300. Shirvan var 6.017 tonna olíuskip, með 8.050 tonn af gasolíu innanborðs en skipið var á leið í Hvalfjörð. Tundurskeyti þýska kafbátsins hitti Shirvan og varð skipið samstundis alelda. Farþegaskipið Goðafoss sigldi til bjargar og tókst að bjarga öllum þeim nítján sem voru í áhöfn Shirvan en nokkrir þeirra hlutu alvarleg brunasár. Goðafoss sigldi á fullri ferð til Reykjavíkur en aðeins klukkustund síðar varð Goðafoss einnig fyrir tundurskeyti frá þýska kafbátnum. Fórust fjölmargir við árásina eða fjórtán úr áhöfn Goðafoss og tíu farþegar, þar á meðal tvö börn. Einnig fórust allir nítján skipverjar Shirvan. Staðsetning olíunnar á Faxaflóa passar við þann punkt þar sem talið er að Shirvan hafi sokkið og passar stærðin á skipinu einnig við mælingar sjómælingabátsins Baldurs frá síðastliðinni viku sem þóttu sterklega benda til að þar lægi bandaríska varðskipið.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira