Ráðfærir sig við lögfræðinga 18. september 2009 07:00 Gagnagrunnur Jóns Jósefs sýndi að Baugsfeðgar voru tengdir á 809 vegu í íslensku viðskiptalífi. Fréttablaðið/stefán
Jón Jósef Bjarnason, sem bjó til gagnagrunn um tengsl manna í viðskiptalífinu, segir að Ríkisskattstjóri hafi vegið að mannorði sínu með fréttatilkynningu sem embættið sendi út í fyrrakvöld. Þar segir að til athugunar sé hvort Jón hafi tekið upplýsingar til að nota í gagnagrunninn í heimildarleysi en Jón er fyrrverandi starfsmaður Ríkisskattstjóra. Eins er upplýst í fréttatilkynningunni að einkahlutafélag Jóns Jósefs hafi ekki skilað frá sér ársreikningi undanfarin þrjú ár. „Ég skil ekki af hverju hann er að setja þetta í blöðin,“ segir Jón Jósef. Hann segist hafa samið um aðgang að gögnunum og tekið fram til hvers hann væri að nota þau og að það tengdist ekki störfum hans hjá Ríkisskattstjóra. Jón Jósef ætlar að ráðfæra sig við lögfræðinga um stöðu sína vegna tilkynningar Ríkisskattstjóra og annars sem málið varðar. „Við erum ekkert að vega að Jóni,“ sagði Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. „Hann hefur ekki farið að persónuverndarlögum og það er til athugunar hvort hann hafi tekið gögnin án heimildar.“ Um það hvers vegna upplýsingar séu gefnar í tilkynningunni um ársreikninga einkahlutafélags Jóns Jósefs segir Skúli Eggert að Jón Jósef hafi talað fyrir auknu gagnsæi með því að kortleggja eigendur félaga og rekstur þeirra. Persónuvernd hefur nú mál Jóns Jósefs til meðferðar.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Sjá meira