Eiður Smári orðaður við West Ham ásamt fleirum Ómar Þorgeirsson skrifar 26. ágúst 2009 09:00 Eiður Smári Guðjohnsen. Nordic photos/AFP
Knattspyrnustjórinn Gianfranco Zola hjá West Ham hefur ekki farið leynt með vilja sinn um að fá einn til tvo nýja framherja til Lundúnafélagsins áður en félagsskiptaglugganum lokar 1. september næstkomandi. Carlton Cole er í raun eini leikfæri framherjinn sem Zola getur notast við ef frá eru taldir nokkrir unglingar og Dean Ashton sem er alvarlega meiddur og óvíst hvort að hann spili nokkurn tímann aftur fyrir félagið. Útlit er þó fyrir að Zola sé búinn að tryggja sér þjónustu landa síns Alessandro Diamanti frá Livorno á 5,5 milljónir punda en West Ham mun greiða kaupverðið á þremur árum og framherjinn mun að öllu óbreyttu gangast undir læknisskoðun í dag og skrifa undir samning. Sögusagnir eru hins vegar á kreiki í breskum fjölmiðlum í dag og í gær að West Ham ætli ekki að nema staðar þar og félagið er sagt vera í viðræðum um að fá annað hvort Eið Smára Guðjohnsen frá Barcelona eða Marouane Chamakh frá Bordeaux. Julio Baptista hjá Roma og Goran Pandev hjá Lazio voru einnig nefndir í þessu samhengi en báðir leikmenn hafa staðfest í dag að þeir séu ekki á leiðinni til West Ham.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira