Innlent

Botninn dottinn úr gulldepluveiðum í bili

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Botninn er dottinn úr gulldepluveiðunum í bili að minnsta kosti, en þessi óvænta búbót nemur nú um það bil 30 þúsund tonnum.

Síðast veiddist hún djúpt suðvestur af landinu en þar versnaði veður í gær og eru síðustu skipin nú á landleið til löndunar. Óvissa er um framhaldið, enda liggur ekki fyrir nein vitneskja um hegðan gulldeplunnar hér við land. Nokkur skip eru enn að leita loðnu við Suðurströndina í von um að nægilegt magn finnist, svo hægt verði að gefa út kvóta, en það hefur ekki enn fundist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×