Íbúi við Hverfisgötu handtók fjóra brennuvarga 21. september 2009 13:56
Íbúi við Hverfisgötuna hljóp á eftir fjórum brennuvörgum eftir að þeir höfðu kveikt í mannlausu húsi við götuna í gærkvöldi. Náði hann að loka þá inni á veitingastaðnum Ítalíu og halda þeim þar til lögreglan kom á staðinn. Því var um að ræða svokallaða borgaralega handtöku. Um er að ræða börn á aldrinum 11 til 15 ára og mun lögregla vísa máli þeirra til barnaverndaryfirvalda. Slökkviliðinu barst tilkynning um eld í húsinu um sex leytið í gærkvöldi. Allar stöðvar voru sendar af stað en þegar fyrsti bíllinn kom á vettvang var stórútkallið afturkallað þar sem aðeins logaði í rusli á jarðhæð hússins og tók því enga stund að slökkva eldinn. Íbúinn, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að kona sín hafi orðið vör við ferðir brennuvargana bæði fyrir brunann og eftir að slökkviliðið fór af vettvangi. „Ég hélt því á eftir þeim en var búinn að hringja í lögregluna og var með hana í farsímanum meðan á eftirförinni stóð," segir íbúinn. „Þetta voru fjórir unglingar og á leiðinni upp á Laugaveg útveguðu þeir sér barefli og héldu síðan inn á veitingastaðinn Ítalíu. Þar náði ég að læsa þá inni þar til lögreglan kom." Íbúinn sem og varðstjóri í slökkviliðinu segja að það sé stórhættulegt að kveikja í húsi á borð við það sem stendur við Hverfisgötu 32 þar sem kveikt var í. Þetta er fyrrum hústökuhús og þar leita rónar oft skjóls og eiga til að leggjast til svefns þarna innandyra. „Það er stórhættulegt fyrir unglinga sem þessa að stunda íkveikjur í þessu hús en slíkt hefur gerst áður," segir íbúinn. „Skyndilega gætu þessir brennuvargar verið komnir með morð á samviskuna."
Mest lesið Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira