Innlent

Hasshaus frá Borganesi sviptur ökuréttindum

Borgarnes. Mynd tengist ekki frétt.
Borgarnes. Mynd tengist ekki frétt.

Tuttugu og fimm ára gamall Borgnesingur hefur verið dæmdur fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna í Borgarnesi. Hann var reyndar einu sinni stöðvaður á Vestulandsveginum, þá á leiðinni til Borganess.

Alls var maðurinn stöðvaður átta sinnum og alltaf fundust leifar af kannabis í þvagi hans eftir rannsóknir lögreglu.

Héraðsdómur Vesturlands dæmir hann því í 250 þúsund króna sekt. Að auki er hann sviptur ökuréttindum í níu mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×