Þakka guði fyrir að við vöknuðum ekki 24. september 2009 06:00 Brynja segir innbrotsþjófinn greinilega hafa tekið sinn tíma inni í íbúðinni. fréttablaðið/valli „
Þetta er nánast alveg eins og innbrotið sem Fréttablaðið sagði frá um síðustu helgi. Það er brotist inn um miðja nótt, allt verðmætt tekið og svo keyrt burt á bílnum,“ segir Brynja Þórhallsdóttir, íbúi í Reynihvammi í Hafnarfirði. Brotist var inn í íbúð Brynju, þar sem hún svaf ásamt fimm mánaða gamalli dóttur sinni, á þriðjudagsnótt. Þaðan var meðal annars stolið dýrri myndavél, gjaldeyri, vegabréfum og glænýjum Lexus-jeppa. Fréttablaðið greindi á laugardag frá svipuðu innbroti í Ásahverfi í Hafnarfirði. Alls hefur því verið tilkynnt um fimm innbrot á sömu slóðum í Hafnarfirði á einni viku. Brynja segir það hafa verið óhugnanlegt að vakna og uppgötva að farið hefði verið um íbúðina um nóttina. „Ég þakka bara guði fyrir að við vöknuðum ekki. Ég vil ekki hugsa til þess sem hefði getað gerst ef ég hefði farið fram og lent í klónum á þessum aðilum. Það er ótrúlegt hvernig þetta þjóðfélag okkar er orðið. Nú vona ég bara að allt heiðarlega fólkið standi saman til að loka á þessa menn,“ segir Brynja. Ólafur G. Emilsson, stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði, segir að málin fimm séu rannsökuð með tilliti til þess hvort þau tengist innbyrðis. Játningar hafi fengist við þremur innbrotanna, en ekki sé enn vitað hvort hin tvö tengist þeim. „Í þeim tilfellum sem játningar hafa komið fram er um að ræða ungt íslenskt vandræðafólk sem á í basli með áfengi og önnur vímuefni,“ segir Ólafur G. Emilsson.- kg
Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Fleiri fréttir Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Snýr aftur sem bæjarstjóri eftir árslangt veikindaleyfi Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Sjá meira