Innlent

Áhugi Norðmanna styrkir Drekasvæðið

Mynd/Valgarður Gíslason
Iðnaðarráðherra segir áhuga Norðmanna á olíuleit við Jan Mayen styrkja Drekasvæðið. Forstjóri Sagex Petroleum segir mikla óvissu, áhættu og kostnað fylgja olíuleit á báðum svæðunum.

Olíudraumar Íslendinga voru settir tímabundið á ís, eftir að norska fyrirtækið Sagex Petroleum afturkallaði umsókn um sérleyfi til að hefja rannsóknir og vinnslu á Drekasvæðinu. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að olíuleitarverkefnið verði þó fráleitt slegið út af borðinu þótt undirbúningur muni taka heldur lengri tíma en til stóð.

„Ég á von á því. Við ætlum að halda ótrauð áfram og opnum vonandi fyrr en síðar fyrir þetta aftur. Í hvaða formi á eftir að koma í ljós það má hugsa sér að við opnum í tölvuert langan tíma," segir Katrín.

Norðmenn skoða nú fýsileika þess að hefja olíuleit við Jan Mayen og sagði forstjóri Sagex í samtali við fréttastofu í gær að fyrirtækið hefði verið inni í þeirri mynd árum saman. Hins vegar ættu Jan Mayen svæðið og Drekinn, það sameiginlegt að þar væri mjög kostnaðar- og áhættusamt að hefja rannsóknir og hugsanlega vinnslu á olíu. Alls óvíst væri hvort þar væri nokkuð að finna og því mikilvægt að fleiri en eitt fyrirtæki kæmu að svo stóru verkefni til að dreifa kostnaði og áhættu. Iðnaðarráðherra segir að áform Norðmanna um olíuleit við Jan Mayen styrki Drekasvæðið.

„Það styrkir trúna á svæðinu ef Norðmenn eru farnir af stað. Auk þess eigum við um 20% hlut í ákveðnum svæðum þar þannig að það gæti þýtt tekjur fyrir okkur Íslendinga ef þar finnst olía," segir Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×