Drekka Guinness saman á föstudögum 22. september 2009 06:00 Eina skráða áhugamannafélagið um Guinness hittist á hverjum föstudegi á Kringlukránni. Félagsmenn klæðast Guinness-fatnaði hvern föstudag. fréttablaðið/daníel
Eina skráða íslenska áhugamannafélagið um írska drykkinn Guinness er tíu ára á þessu ári. Þessi hressi karlahópur hittist á hverju föstudagssíðdegi á Kringlukránni, ber saman bækur sínar og skellir að sjálfsögðu einum Guinness eða svo í sig. „Þetta byrjaði á því að ég og nafni minn, Grettir Grettisson, fórum úr vinnu klukkan fimm, laumuðum okkur inn á pöbb og fengum okkur Guinness,“ segir leiðtogi félagsins, Grettir Sigurðsson, eða Grettir Sig eins og hann kallar sig. „Þegar fréttist af þessum fögnuði fór að bætast í hópinn og allir vildu vera með. Þetta endaði með því að þetta var orðinn fastur félagsskapur.“ Stífar reglur eru í félaginu og enginn kemst upp með neitt múður. „Við erum með kladda eins og í skólanum í gamla daga. Það er kallað upp og menn þurfa að senda skilaboð til leiðtoga ef þeir komast ekki. Menn fá F ef þeir hafa ekki látið leiðtoga vita og ákveðið mörg F þýða umgangur á borðið.“ En hvers vegna Guinness? „Þetta er stórmerkur mjöður. Hann er fullur af vítamíni, humlum og bætiefnum,“ útskýrir Grettir. „Hann er mjög sérstakur fyrir það að loftbólurnar fara niður en ekki upp. Þetta er rannsóknarefni vísindamanna víða um heim. Þetta er þessi skemmtilega blanda af kolsýru og köfnunarefni.“ Þeir félagar fussa og sveia yfir venjulegum bjór og kalla hann einfaldlega sullið. „Ef í harðbakkann slær látum við okkur hafa það en Guinness er alltaf númer 1, 2 og 3.“ Guinness-fyrirtækið fagnar 250 ára afmæli sínu í september og af því tilefni verður hátíð haldin á English Pub næsta fimmtudag þar sem Grettir og félagar verða að sjálfsögðu meðal gesta. - fb
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira