Erlent

Lottómilljónamæringur ætlar í tívolí

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Konan datt í lukkupottinn.
Konan datt í lukkupottinn.
Hún datt heldur betur í lukkupottin einstæða þriggja barna móðirin frá Køge í Danmörku. Konan, sem hafði framfleytt sér og börnum sínum á bótum frá hinu opinbera, ákvað að festa kaup á lottómiða laugardaginn 11. júlí síðastliðinn.... og viti menn! Hún fékk fyrsta vinning, sem hljóðaði upp á 10 milljónir danskra króna eða sem nemur um 240 milljónum íslenskra.

Konan hefur forðast athygli fjölmiðla frá því að hún hreppti stóra vinningin. En í yfirlýsingu sem Danske Spil, umboðsaðili danska lottósins sendi frá sér, segir hún að fjölskyldan hafi ekki haft efni á því að fara í tívolí um árabil. Á því verði nú breyting.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×