Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. ágúst 2026 08:41 Þvottastöðvarnar eru notaðar til viðhafnarþvotta, þar sem andlit, hendur og fætur eru þvegin fyrir bænir. Múslimar kalla þvottana „wudu“. Getty Ríkisstjóri Texas hefur biðlað til dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna um að rannsaka hvort það feli í sér mismunun að tveir stærstu flugvellir ríkisins séu með þvottastöðvar fyrir múslima.
Rýmin, sem er að finna á Dallas-Fort Worth International Airport og George Bush Intercontinental Airport í Houston, eru notuð af múslimum til að þvo andlit sín, hendur og fætur áður en þeir biðja. Ríkisstjórinn, Greg Abbott, hefur gagnrýnt að flugvellirnir bjóði upp á þessa „þjónustu“ og segir óforsvaranlegt að vera með sérstakt rými fyrir einn trúarhóp sem aðrir hafa ekki aðgang að. Hann bendir á að munur sé á umræddum rýmum og almennum bænarýmum sem finna má á mörgum stórum flugvöllum. Þar séu allir trúarhópar velkomnir. Abbott, sækist nú eftir endurkjöri í fjórða sinn, og hefur þegar farið þess á leit við samgönguyfirvöld að þau leggi flugvöllunum ekki til meira fjármagn fyrr en þvottastöðvunum hefur verið lokað. Stjórnendur Dallas-Fort Worth vallarins ákváðu í kjölfarið að hætta við fjölgun rýmanna, eins og til hafði staðið. Leiðtogar múslima hafa hafnað þeim málatilbúnaði Abbot að með þvottastöðvunum sé mismunað gegn þeim sem ekki eru múslimar. Um sé að ræða nýjasta útspilið í herferð Repúblikanaflokksins gegn múslimum.
Trúmál Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira