Heimshöfin aldrei heitari Kjartan Kjartansson skrifar 24. ágúst 2026 13:55 Kona myndar brimið við Rio de Janeiro í Brasilíu. Þegar sjór hitnar þenst hann út. Meiri hætta verður þannig á sjávarflóðum auk þess sem hlýr sjór fóðrar storma og úrhellisúrkomu. Vísir/EPA Meðalhiti heimshafanna utan pólsvæðanna tveggja hefur aldrei mælst hærri en á laugardag. Sérstaklega sterkur El niño í Kyrrahafi er þegar sagður farinn að láta til sín taka.
Athuganir evrópsku loftslagsstofnunarinnar Kópernikusar var meðalyfirborðshiti heimshafanna 21,1 gráða á Celsíus á laugardag. Hann hefur ekki mælst hærri frá því að gervihnattamælingar hófust undir lok áttunda áratug síðustu aldar, að því er kemur fram í frétt The Guardian. Yfirleitt nær sjávarhiti á heimsvísu hámarki í mars og apríl undir lok sumars á suðurhveli en umtalsvert meira hafsvæði er á suðurhveli en norðurhveli. El niño-veðurfyrirbrigðið í Kyrrahafi er sagt magna upp hitann í hafinu. Fyrirbrigðip byrjaði að myndast fyrra á þessu ári. Veðurfræðingar hafa varað við að það gæti verið óvenjulega sterkt á þessu sinni. „Metið er annað teikn um að það sé vaxandi álag á hafinu. El niño bætir við hita í kerfið en hann gerir það ofan á áratugi af manngerðri hlýnun. Afleiðingarnar eru þegar greinilegar: hitabylgjudagar í hafinu á heimsvísu hafa rúmlega þrefaldast frá byrjun 10. áratugsins,“ segir Samantha Burgess frá Kópernikusarstofnuninni. Hlýindi í hafinu þenja sjóinn út sem eykur hættu á sjávarflóðum í strandbyggðum. Þau fóðra einnig veðuröfgar eins og storma og aftakaúrkomu. Áætlað er að heimshöfin hafi drukkið í sig um níutíu prósent þeirrar umframorku sem hefur haldist við yfirborð jarðar vegna aukinna gróðurhúsaáhrif lofthjúpsins af völdum athafna manna. Þau hafa einnig tekið við stórum hluta þess koltvísýrings sem menn hafa spúð út í andrúmsloftið frá iðnbyltingu þar sem hann veldur súrnun sjávar.
Hafið Loftslagsmál Vísindi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira