Ummæli utanríkisráðherra Hollands óskynsamleg Höskuldur Kári Schram skrifar 22. júlí 2009 12:13
Ummæli utanríkisráðherra Hollands í þarlendum fjölmiðlum um Icesave og Evrópusambandið eru óskynsamleg að mati formanns utanríkismálanefndar Alþingis. Þingmaður Borgarahreyfingarinnar vill að Ísland dragi aðildarumsókn sína til baka þar sem ljóst sé að Evrópusambandið ætli að kúga Íslendinga til að samþykkja Icesave samkomulagið. Maxime Verhagen, utanríkisráðherra Hollands, hringdi í Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í gær til að þrýsta á Íslendinga til að fallast á Icesave samkomulagið. Í hollenskum fjölmiðlum er fullyrt að Verhagen hafi beinlínis sagt að Íslendingar verði að samþykkja Icesave til að uppfylla skilyrði um Evrópusambandsaðild. Össur Skarphéðinsson heldur til Svíþjóðar í dag til fundar með Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar. Munu þeir meðal annars ræða aðildarumsókn Íslands en ríkisstjórnin hefur hingað til vísað því á bug að Evrópusambandsaðild væri háð samþykki Alþingis á Icesave samkomulaginu. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að ummæli hollenska ráðherrans komi á óvart. „Ég hef sjálfur ekki séð nein né fengið milliliðalaus skilaboð bara sem ég hef heyrt í fjölmiðlum. Og verð að segja það að mér finnst ekki við hæfi að tengja þessi mál með þeim hætti sem fjölmiðlar eru að greina frá að hafi verið gert," segir Árni Þór. Árni segir að vera kunni að málið sé til einhvers innanhalds brúks í hollenskum stjórnmálum og hann hafi enga trú á því að aðrar þjóðir í Evrópusambandinu myndu sætta sig við að þetta yrði gert með þessum hætti. Birgitta Jónsdóttir, fulltrúi borgarahreyfingarinnar í utanríkismálanefnd, segir augljóst að Evrópusambandið ætli sér að kúga Íslendinga til samþykkja Icesave.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira