Töluvert annríki hjá lögreglu í gær Gunnar Örn Jónsson skrifar 22. júlí 2009 21:35
Töluvert annríki var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær en eins og komið hefur fram í fréttum er mikill niðurskurður á fjárlögum til embættisins. Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir í Reykjavík í gær. Í fórum þeirra fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir. Mál þeirra eru óskyld en annar þeirra hefur játað innbrot í miðborginni. Karl um þrítugt var einnig handtekinn í austurborginni í gær en sá freistaði þess að komast undan með vörur úr stórmarkaði án þess að greiða fyrir þær. Maðurinn hafði setti vörur í innkaupakerru en var stöðvaður með hana fyrir utan verslunina. Tvær unglingsstúlkur voru líka staðnar að hnupli í Smáralind. Þær voru fluttar á lögreglustöð en þaðan var hringt í forráðamenn þeirra sem komu og sóttu stúlkurnar. Snemma í morgun voru karl og kona á þrítugsaldri handtekin við hús í Garðabæ. Þau voru sakleysið uppmálað þegar lögreglan kom á vettvang en í bíl þeirra fundust munir sem talið er að séu illa fengnir. Skemmdarverk í Reykjavík Karl um þrítugt var handtekinn í Hlíðunum í gær en þar hafði hann brotið tvær rúður í fjölbýlishúsi. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð en ekki er vitað hvað honum gekk til. Rúða var sömuleiðis brotin hjá fyrirtæki í miðborginni en skemmdarvargurinn er ófundinn. Rúða var líka brotin í bíl í Breiðholti og þá voru unnar skemmdir á tveimur bílum, öðrum í Grafarvogi en hinum í vesturbæ borgarinnar. Innbrot og þjófnaðir Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Brotist var inn í tvo bíla í Elliðaárdal og einn í Hafnarfirði en vegna þessa vill lögreglan ítreka að verðmæti séu ekki höfð í augsýn í ökutækjum. Innbrotsþjófar voru líka á kreiki í miðborginni og stálu tölvu og bakpoka úr kjallaraíbúð. Gamall gítar og útidyramotta hurfu frá leikskóla í vesturbæ borgarinnar og í austurborginni var veiðigræjum stolið úr geymslu verslunar- og þjónustuhúss. Tölva, myndavél og áfengi var tekið úr íbúð í Kópavogi og hljómflutningstækjum var stolið úr húsi í Mosfellsbæ. Verkfærataska var tekin ófrjálsri hendi í miðborginni og í sama hverfi var bíl stolið síðdegis. Bíllinn fannst óskemmdur nokkru síðar en þjófurinn er hinsvegar ófundinn.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira