Segir starfsleyfi frá Persónuvernd hafa skort 16. september 2009 19:11
Ríkisskattstjóri segir að IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustu hafi ekki haft starfsleyfi frá Persónuvernd þegar samningur var gerður um miðlun upplýsinga úr hlutafélagaskrá. Samningurinn var gerður í trausti þess að slíkt leyfi lægi fyrir áður en niðurhal og notkun upplýsinga hæfist. Þegar í ljós kom að svo var ekki var lokað fyrir aðgang hlutaðeigandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisskattstjóra nú í kvöld. Þá segir að afstaða Persónuverndar varðandi þá framsetningu og tengingu upplýsinga sem miðlarinn hugðist birta umfram þá almennu birtingu sem starfsleyfi miðlara hafi kveðið á um liggi ekki fyrir. Ríkisskattstjóri sendir frá sér tilkynninguna í ljósi umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið um lokun á aðganginn. „Þá hefur komið í ljós að IT Ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf. hafði undir höndum og nýtti sér upplýsingar úr hlutafélagaskrá sem ekki verður betur séð en að forráðamaður þess hafi sem fyrrum starfsmaður ríkisskattstjóra tekið án heimildar. Sá þáttur er nú til sérstakrar meðferðar. Það skal áréttað að embætti ríkisskattstjóra er mjög áfram um að upplýsingagjöf til almennings sé með sem bestum hætti og gagnsæi sé haft að leiðarljósi. Slíkt þarf þó ætíð að rúmast innan ramma laga og persónuverndar. Ríkisskattstjóri getur þannig ekki ljáð atbeina embættisins til að stunduð sé upplýsingamiðlun úr gagnagrunnum þess nema uppfyllt séu skilyrði laga, hversu göfug sem markmiðin eru. Lagaskilyrðin hafa ekki verið uppfyllt hjá IT ráðgjöf og hugbúnaðarþjónustu ehf. Þá hefur forráðamaður IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf. lýst nauðsyn á auknu gagnsæi með kortlagningu eigenda félaga og rekstrar þeirra. Í ljósi þess vekur það athygli að það félag hefur á hinn bóginn ekki virt skýr fyrirmæli laga um afhendingu ársreikninga undanfarin þrjú ár," segir í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Kanna persónuverndamál vegna viðskiptatengslaforrits „Ríkisskattstjóri er að kanna persónuverndaþátt málsins," segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri í samtali við Vísi. 14. september 2009 09:39 Mest lesið Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Sjá meira
Kanna persónuverndamál vegna viðskiptatengslaforrits „Ríkisskattstjóri er að kanna persónuverndaþátt málsins," segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri í samtali við Vísi. 14. september 2009 09:39