Stefna að útboði á næsta ári 3. nóvember 2009 04:00 Vegagerðin segir gert ráð fyrir efnistöku í Hófsá vegna jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Áhrif efnistökunnar verði þó að mestu afturkræf. Fréttablaðið/Jón Sigurður
Samkvæmt frummatsskýrslu Vegagerðarinnar verða umhverfisáhrif af gerð jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar að mestu óveruleg. „Áhrif á samgöngur og samfélög eru verulega jákvæð en á landnotkun, fjörur, straumvötn og landslag eru áhrifin á mörkum þess að vera talsvert neikvæð og óveruleg", segir í niðurstöðum skýrslunnar. Fram kemur að Samgönguáætlun geri ráð fyrir að göngin verði gerð á árunum 2011 til 2014. „Ríkisstjórn Íslands lýsti því yfir árið 2007, er hún kynnti svonefndar mótvægisaðgerðir vegna minni þorskkvóta, að flýta ætti jarðgangagerðinni þannig að hægt væri að taka göngin í notkun árið 2012. Þessar yfirlýsingar kunna að vera úreltar vegna efnahagsástands, en ákveðið hefur verið að halda áfram með hönnun og undirbúning," segir þar. Tillaga að framkvæmdinni og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar til 15. desember næstkomandi hjá Ísafjarðarbæ, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða, www.nave.is. „Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. desember 2009 til Skipulagsstofnunar," segir í Lögbirtingablaðinu.- óká
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Fleiri fréttir Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Sjá meira