Enski boltinn

Hargreaves getur ekki beðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Owen Hargreaves í leik með United fyrir tveimur árum síðan.
Owen Hargreaves í leik með United fyrir tveimur árum síðan. Nordic Photos / Getty Images

Owen Hargreaves segir að hann geti varla beðið eftir því að fá að spila með Manchester United á nýjan leik.

Hargreaves hefur átt við erfið meiðsli að stríða í báðum hnjám og þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna. Hann spilaði síðast með United gegn Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu vorið 2008.

„Ég get varla beðið eftir því að komast aftur á fullt," sagði Hargreaves. „Ég get ekki beðið eftir því að spila með United á nýjan leik - klæðast treyjunni og láta til mín taka í leikjum."

„Það verður frábær tilfinning að fá að hlaupa aftur um á Old Trafford."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×