Telja bæjarráðsformann án umboðs 19. september 2009 04:30 Magrét Jónsdóttir hafnar fullyrðingum fyrrum félaga um að hana skorti umboð sem formaður bæjarráðs. Fréttablaðið/Vilhelm
Bæjarfulltrúar Álftaneslistans vilja að Margrét Jónsdóttir segi af sér sem formaður bæjarráðs. Margrét sagði í sumar skilið við félaga sína í bæjarstjórnarhópi Á-listans og er nú óháð. Í samvinnu við bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks samþykkti Margrét að segja Sigurði Magnússyni af Á-listanum upp störfum sem bæjarstjóri. Á bæjarráðsfundi á fimmtudag átöldu fyrrum félagar Margrétar hana fyrir að leiða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins til valda. „Ljóst er að Margrét Jónsdóttir er gengin í eina sæng með Guðmundi G. Gunnarssyni og félögum,“ sögðu fulltrúar Á-listans og bæta því við að Margrét sé skuldbundin þeim íbúum sem veittu henni brautargengi á vegum Álftaneshreyfingarinnar og til að standa vörð um málefni sem hreyfingin standi fyrir. „Jafnframt skal vakin athygli á því að Margrét Jónsdóttir hefur verið umboðslaus frá 27. júlí 2009 í öllum þeim embættum sem hún situr í kosin af Á-lista, meðal annars sem formaður bæjarráðs og þarf hún því að segja af sér þessum embættum,“ sögðu þau Kristín Fjóla Bergþórsdóttir og Sigurður Magnússon. Þessu hafnaði Margrét í bókun á bæjarráðsfundinum. „Ég sit í öllum tilfellum í umboði bæjarstjórnar og á meðan bæjarstjórn breytir ekki því umboði stendur það. Ég vísa því á bug þessum orðum fulltrúa Á-lista og tel þau ekki svara verð.“
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira