Innlent

Viðbúnaður á Landspítalanum færður á virkjunarstig

Viðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins samkvæmt tilkynningu frá Landlæknaembættinu.

Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreint er í áætluninni; efst er neyðarstig. Á „virkjunarstigi" viðbúnaðar gæti þurft að draga úr innlögnum sjúklinga og fresta þeim aðgerðum sem unnt er að fresta á Landspítalanum.

Á Landspítala lágu þrjátíu og níu inflúensusjúklingar um hádegi í gær, þar af níu á gjörgæsludeild. Tólf inflúensusjúklingar voru lagðir inn á einum sólarhring vegna inflúensunnar en tveir voru útskrifaðir á sama tíma. Meira reyndi í gær á starfsemi Landspítala vegna inflúensunnar en nokkru sinni fyrr frá því faraldurinn hófst.

Sjúklingar á gjörgæsludeildum spítalans eru á aldrinum tveggja ára til sjötíu og níu ára. Alls hafa 6.609 manns greinst með inflúensueinkenni hérlendis. Útbreiðsla faraldursins hefur ekki aukist á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið en veikin breiðist út á landsbyggðinni.

Svo segir í tilkynningu:

Frá 23. september 2009 hafa yfir hundrað manns verið lagðir inn á sjúkrahús hérlendis með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009, þar af tæplega níutíu manns á Landspítala. Af þeim eru þrír af hverjum fjórum með undirliggjandi sjúkdóma.

Frá októberbyrjun hafa fjórtán sjúklingar verið lagðir inn á gjörgæsludeildir með staðfesta inflúensu eða gruns um hana. Í gær voru alls tíu á gjörgæsludeildum, þar af einn á Akureyri og níu á Landspítala. Meðalaldur þeirra er um fimmtíu ár og aldursbilið frá tveggja ára til sjötíu og níu ára.

Fólk á öllum aldri greinist með sjúkdóminn í öllum sóttvarnaumdæmum landsins. Flestir eru fimmtán til nítján ára og unnt er að greina hlutfallslega fjölgun sjúkdómstilvika barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri miðað við aldursdreifinguna í júlí og ágúst í sumar.

Inflúensutilfellum fækkaði nokkuð í aldurshópnum tuttugu til þrjátíu ára og fækkaði verulega hjá þeim sem eru sextugir og eldri. Þetta kann hins vegar að breytast þegar líður á faraldurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×