Össur gagnrýndi Alþjóðagjaldeyrissjóðinn 27. september 2009 09:48
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi það harðlega í ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, að óskyldar tvíhliða deilur Íslendinga við Hollendinga og Breta tefðu framgang efnahagsáætlunar Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Þar minnti hann á að nú væri ár liðið frá því Íslendingar urðu fyrsta fórnarlamb alþjóðlegu fjármálakreppunnar, sem á svipstundu hefði nánast þurkað út bankakerfi landsins og ýtt Íslandi í mestu efnahagskreppu í manna minnum. Íslendingar væru fyrsta fórnarlamb græðgi fjármálaheimsins jafnt heima fyrir sem og á alþjóða vísu, sem hafi misnotað regluverk, stjórnast af vafasömum vinnuaðferðum, falið fjármuni í skattaskjólum og byggt á ábyrgðarlausum bónusgreiðslum sem hafi stuðlað að meiri áhættusækni en áður þekktist. Össur sagði þá sem bæru ábyrgð á efnahagshruninu hafi skilið eftir sig sviðna jörð, ráðviltan almenning sem væri fullur sorgar og reiði og ætti yfir höfði sér gjaldþrot og óttaðist að missa heimili sín og atvinnu. Hann sagði Íslendinga þó vera að rétta úr kútnum, ekki hvað síst fyrir stuðning vinaþjóða á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. En hann þakkaði Pólverjum sérstaklega fyrir að hafa boðið Íslendingum lán án skilyrða, sem væri vináttuvottur sem Íslendingar myndu aldrei gleyma. Utanríkisráðherra sagði áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að mestu vera á áætlun en hann yrði þó að koma á framfæri mikilli óánægju Íslendinga með þá staðreynd, að óskildar tvíhliða deilur kæmu í veg fyrir að áætluninni væri að fullu fylgt eftir. Þarna fór ekki á milli mála að utanríkisráðherra var að vísa til deilna Íslendinga við Hollendinga og Breta vegna Icesave. Össur sagði nauðsynlegt að allar þjóðir heims tækju höndum saman við endurreisn efnahagslífsins og ynnu saman gegn þeirri spillingu sem leitt hefði kreppuna yfir heiminn.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira