CCP var þvingað í krónulán 7. nóvember 2009 07:45 Vilhjálmur þorsteinsson
Hugbúnaðarfyrirtækið CCP, sem á og rekur fjölspilunarleikinn EVE Online, neyddist til að endurfjármagna víxil í krónum í gegnum MP banka í enda síðasta mánaðar. Fyrirtækið hefði viljað endurfjármagna lánið með útgáfu skuldabréfs í krónum og greiða til baka í dölum. Fjárfestar höfðu ekki áhuga. Þetta segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður fyrirtækisins. Fyrirtækið horfði til þess að nýta heimild Seðlabankans frá í vor og gefa út skuldabréf í krónum í sumar en greiða til baka í dölum á allt að sjö árum. Bankinn gaf heimildina út í maí á þessu ári með það fyrir augum að vinda ofan af krónubréfaeignum erlendra fjárfesta sem festust hér með eignir sínar við innleiðingu gjaldeyrishaftanna í fyrravetur. Fimm fyrirtæki lýstu yfir áhuga á skuldabréfaútgáfu sem þessari og var CCP komið lengst. Það blés til skuldabréfaútboðs í maílok en lítið barst út af niðurstöðu þess. Vilhjálmur viðurkennir að endurfjármögnunin hafi verið í mótsögn við stefnu fyrirtækisins. Það hafi í gegnum tíðina verið á hröðum flótta undan peningamálastefnunni hér síðustu ár. Einungis tvö prósent tekna fyrirtækisins séu í innlendri mynt, bókhaldið sé fært í dölum frá síðasta ári og starfsfólki greidd laun í evrum og dölum. „Við unnum að því að færa víxilinn yfir í dali. En það var ekki mögulegt. Ef við gætum myndum við kjósa að taka öll lán í erlendum gjaldmiðlum," segir Vilhjálmur. - jab
Mest lesið Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur sögð látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn Sjá meira