Trúverðugleiki og heilindi hafa einkennt störf mín 18. september 2009 20:24 Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ telur sig hafa í störfum sínum staðið vörð um þau grundvallargildi sem bæði hann og sú hreyfing sem hann hefur helgað starfskrafta sína síðustu 20 árin standa fyrir en þú séu trúverðugleiki og heilindi gangvart félagsmönnum samfélaginu í heild. Þetta segir Gylfi í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér seinni partinn í dag í framhaldi fréttar Stöðvar 2. Þar var fjallað um tengls Gylfa við félag í Lúxemborg sem stofnað var í gegnum tvö skúffufélög á Tortola. Í kjölfarið skoraði stjórnarmaður VR á Gylfa að segja af sér vegna meintra tengsla hans við fyrirtækin. Í yfirlýsingunni fer Gylfi rækilega yfir málið en hana má sjér hér að neðan. „Á árunum 1997-2001 var ég framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf., í daglegu tali kallað EFA. Þetta fyrirtæki sérhæfði sig í fjárfestingum í nýsköpunarfyrirtækjum hér á landi og í nágrannalöndum sem fýsilegt væri að laða til landsins. Meðal þeirra fyrirtækja sem við fjárfestum í var Hugvit sem hannað hafði og markaðssett víða um Evrópu hugbúnaðinn GoPro, sem er hópvinnu- og skjalavinnslukerfi. Hugvit hafði fengið nýsköpunarverðlaun hér á landi og stækkaði mjög ört, bæði með eigin vexti og sameiningu við önnur skyld fyrirtæki, en fyrirtækið fékk á þessum tíma verðlaun fyrir að vera 16. hraðvaxnasta fyrirtæki Evrópu. Meðal samstarfsaðila Hugvits var m.a. IBM sem seldi hugbúnaðinn. Á árinu 1999 var mikil krafa meðal starfsmanna Hugvits um að komið yrði á einhvers konar kaupréttakerfi hjá fyrirtækinu en á þeim tíma var mikil umræða um slíkt hér á landi. Með því var átt við að starfsmönnum yrði gert kleyft að kaupa hlutabréf á fyrirfram umsömdu verði og hagnast af því ef vel gengi.. Niðurstaða stjórnar Hugvits var að undirbúa slíkt kerfi sem gæti leitt til hóflegs kaupauka. Á þessum tíma voru starfsmenn Hugvits allmargir og starfandi víða um Evrópu, aðallega Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Bretlandi. Ljóst var að skattaleg meðferð þessara kaupauka var æði ólík í þessum ríkjum. Hér á landi var þetta mjög skýrt þ.e. öll verðmæti sem launafólk fær vegna starfa sinna eru talin skattskyld laun og það kom aldrei til álita af hálfu stjórnar Hugvits að búa til kerfi sem færi á svig við þau lög. Að sama skapi var það ekki réttlátt að láta íslenskar skattareglur gilda um erlenda starfsmenn okkar í erlendum dótturfélögum í öðrum löndum, sérstaklega ef þarlendar reglur væru starfsmönnum hagstæðari. Því var það ráðlegging endurskoðenda Hugvits að staðsetja kaupréttina í sérstöku félagi í Lúxemborg og gefa verðmæti kaupréttanna eða kaupaukanna upp til viðkomandi skattayfirvalda þegar og ef til þeirra myndi koma. Persónulega fannst mér þetta sanngjörn og rökrétt leið. Hún tryggði öllum starfsmönnum ákveðið jafnræði gagnvart fyrirtækinu og var hlutlaus gagnvart skattareglum viðkomandi ríkja. Þetta fól einnig í sér að skattskyld hlunnindi gætu ekki flust frá ríkjum með ,,óhagstæða'' skattalöggjöf til ríkja með ,,hagstæðari'' löggjöf. Það varð niðurstaða stjórnar að koma þessu í framkvæmd vorið 2000 með því að leggja fram 2,5 milljóna lágmarkshlutafé sem stofnfé. Þeir starfsmenn sem báru ábyrgð á því að koma þessu í framkvæmd óskuðu eftir aðstoð viðskiptabanka félagsins. Atburðarásin í framhaldi þess var síðan sú, að í stað þess að stofna fyrirtæki í Lúxemborg í nafni Hugvits seldi Kaupþing Lúxemborg Hugviti fyrirtæki sem bankinn hafði áður stofnað í Lúxemborg í gegnum einhverja lögfræði- eða endurskoðunarskrifstofu eða einhver skúffufyrirtæki á eyjunni Tortola. Bankinn hélt síðan aðalfund á skrifstofu sinni og breytti nafninu í Motivation Investment Holding og kaus stjórn Hugvits sem nýja stjórn. Þessu vissum við ekkert af, en vorum í góðri trú með að hafa stofnað dótturfyrirtæki í Lúxemborg með hefðbundnum hætti og með það tiltekna og afmarkaða hlutverk að halda utan um kauprétt starfsmanna í móðurfélaginu eins og nafn þess ber raunar með sér. Áður en til þess kom að veita starfsmönnum einhverja kauprétti sprakk internetbólan síðar á árinu 2000 og Motivation Investment Holding tók aldrei formlega til starfa. Félagið hafði engar skattskyldar tekjur og átti engar slíkar tekjur að hafa og því var ekki um neinskonar skattundanskot að ræða. Ég lét af störfum sem framkvæmdastjóri EFA í júlí 2001 og hætti þá samdægurs í öllum stjórnum fyrirtækja sem EFA átti í og ekki með atburðarásinni eftir það. Í framhaldi af efnahagsþrengingum hér á landi á árunum 2001-2002 fór Hugvit (sem þá hét GoPro/Landsteinar Group) í fjárhagslega endurskipulagningu, seldi einstök dótturfélög eða lokaði og var móðurfélagið síðan lagt niður að ég held. Ekki veit ég hvers vegna eigendur þess afskráðu ekki þetta fyrirtæki í Lúxemborg og millifærðu hlutafé þess heim, en mér skilst að Kaupþing í Lúxemborg hafi haldið þessu gangandi, rukkað reglulega þóknanir fyrir utanumhaldið þangað til hlutaféð var uppurið og þá afskráð það en það var ekki fyrr en í ársbyrjun 2008 ef marka má frétt Stöðvar 2. Bankinn gerði aldrei tilraun til þess að hafa uppá eigendum né upplýsa skráða stjórnarmenn um hvernig málinu væri háttað. Eins og fram kemur í þessari lýsingu hef ég ekki komið fram með ósiðlegum eða ótrúverðugum hætti í þessu máli. Það að stofna fyrirtæki í Lúxemborg með það afmarkaða og skilgreinda hlutverk að tryggja ákveðið jafnræði gagnvart starfsmönnum m.v. þær skattareglur sem giltu í þeirra heimalandi hefði ég haldið að væri fremur til eftirbreytni en bera vott um siðleysi. Á síðustu mánuðum hefur það hins vegar komið í ljós að ótrúlega margir hafa lagt sig fram um að stofna félög í skattaparadísum til að fela tekjur sína og eignir. Nú hefur einnig komið í ljós að Kaupþing virðist hafa átt til á lager fyrirtæki í Lúxemborg, sem hann hafði stofnað í gegnum einhverja lögfræði- eða endurskoðunarskrifstofu eða skúffufyrirtæki - á eyjunni Tortola og selt þau bæði þeim sem fóru í einu og öllu að lögum og reglum fyrir opnum tjöldum og þeim sem vildu fela slóð sína. Um þetta verklag bankans hafði hvorki ég né aðrir stjórnarmenn Hugvits neina vitneskju um og getum ekki verið ábyrgir fyrir. Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf. var í eigu stéttarfélaga, lífeyrissjóða og mikils fjölda einstaklinga og launamanna, sem vildu leggja sitt af mörkum til að efla hér atvinnulíf og fjölga vellaunuðum störfum. Ég tók ábyrgð á þeim fjármunum sem mér var falið að fjárfesta fyrir mjög alvarlega sem og ábyrgð mína á því að haga störfum mínum í stjórnum þeirra félag sem við fjárfestum í með þeim hætti að þar væri gætt hagsmuna bæði hluthafa, starfsmanna og samfélagsins í heild. Það er annarra að dæma um frammistöðu mína í því hlutverki en persónulega tel ég mig hafa í störfum mínum staðið vörð um þau grundvallargildi sem bæði ég og sú hreyfing sem ég hef helgað starfskrafta mína síðustu 20 árin standa fyrir en þau eru trúverðugleiki og heilindi gagnvart félagsmönnum og samfélaginu í heild."
Tengdar fréttir Gylfi þegir um áskorun um afsögn Stjórnarmaður VR skorar í opnu bréfi á Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, að segja af sér vegna stjórnarsetu sinnar í fjárfestingarfélagi í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög á Tortola. Gylfi segist ekki hafa lesið bréfið. 18. september 2009 12:39 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira
Gylfi þegir um áskorun um afsögn Stjórnarmaður VR skorar í opnu bréfi á Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, að segja af sér vegna stjórnarsetu sinnar í fjárfestingarfélagi í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög á Tortola. Gylfi segist ekki hafa lesið bréfið. 18. september 2009 12:39