Fjármögnun virkjana Orkuveitunnar á lokastigi 2. nóvember 2009 06:00 strókar frá hellisheiðarvirkjun Fjármögnun er nú á lokastigi fyrir Hellisheiðarvirkjun og Hverahlíðarvirkjun. Líklega verður skrifað undir samninga um lán frá Evrópska seðlabankanum í vikunni. fréttablaðið/valli
Evrópski fjárfestingarbankinn hefur samþykkt að lána Orkuveitu Reykjavíkur 30 milljarða króna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barst samningur þess efnis til fyrirtækisins á föstudag, þar sem skilyrði bankans fyrir lánveitingu eru tíunduð. Það er fyrirtækisins að ákveða hvort það samþykkir þau skilyrði og þar með lánið. Verði það gert verður skrifað undir í vikunni, samkvæmt heimildum blaðsins. Lánveitingin hefur tafist um ár vegna efnahagshrunsins. Það á að nota til að ljúka framkvæmdum við Hellisheiðarvirkjun og 15 milljarðar fara í Hverahlíðarvirkjun, verði hún byggð. Guðlaugur G. Sverrisson stjórnarformaður segir að þegar lánið gangi í gegn sé búist við því að Þróunarbanki Evrópu láni það sem vantar upp á til að ljúka síðarnefndu framkvæmdinni. Lánveiting Evrópska seðlabankans sé heilbrigðisvottorð sem liðki fyrir annarri lánveitingu. Á stjórnarfundi á föstudag voru nýjar áætlanir vegna Hverahlíðarvirkjunar lagðar fram, en þar kemur fram að gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði dýrari en ætlað var. Guðlaugur segir viðræður í gangi við Norðurál um kaup á orkunni þaðan. Orka úr Hellisheiði fari til Norðuráls óháð álveri í Helguvík. „Nú erum við í viðræðum við Norðurál um Hverahlíðarvirkjun. Túrbínur hafa hækkað í verði og innlendur kostnaður lækkað. Við þurfum að hækka allar tölur að okkar mati. Ef Norðurál tekur þátt í kostnaði vegna seinkunar hefur það áhrif á samningana.“ Eigið fé Orkuveitunnar hefur minnkað mjög undanfarið; úr 109 milljörðum króna árið 2007 í tæpa 40 og er það nú á milli 15 og 16 prósent. Guðlaugur segir að gengisþróun hafi gríðarleg áhrif á stöðuna. Batnaði gengi krónunnar um 10 prósent myndi eigið fé fyrirtækisins aukast um 20 milljarða. Hann hefur ekki áhyggjur af því að fyrirtækið sé að verða of skuldsett. Það hafi staðið í miklum framkvæmdum undanfarið. „Við höfum haldið uppi atvinnustigi og framkvæmt fyrir 16 milljarða á árinu 2009, en nefna má að ríkið hefur framkvæmt fyrir 17 milljarða á sama tíma. Þetta höfum við fjármagnað að hluta til með skammtímalánum sem þessi lántaka hreinsar upp.“ Guðlaugur segir Orkuveituna búa við gott vaxtastig; meðaltalsvextir sem fyrirtækið greiðir séu 1,25 prósent. Það muni þó hækka eilítið við nýju lántökuna. Spurður hvort Icesave og endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi áhrif á tímasetningu samninganna segir Guðlaugur svo ekki vera. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Fleiri fréttir Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og samrýmdar tvíburasystur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Sjá meira