Saka ríkisstjórnina um árás 11. september 2009 01:45 Árni Sigfússon
Ríkisstjórnin virðist aðeins geta komið sér saman um eitt atriði varðandi sölu Orkuveitu Reykjavíkur á hlut sínum í HS Orku, og það er að ráðast á bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ. Þetta er fullyrt í opnu bréfi bæjarstjóra og formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar til iðnaðarráðherra. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið að 65 ára leigutími Reykjanesbæjar á orkuauðlindum til HS Orku væri of langur, og farið væri gegn anda laganna. Í opnu bréfi Árna Sigfússonar bæjarstjóra og Böðvars Jónssonar, formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar, er bent á að afskriftartími virkjana Landsvirkjunar sé sextíu ár. Ógerningur sé að hafa leigutíma virkjunar skemmri en afskriftartíma. Í bréfinu segir að árásir iðnaðarráðherra séu sérlega ómaklegar í ljósi þess að Reykjanesbær hafi gengið fram fyrir skjöldu og greitt um milljarð króna til að tryggja að landið og auðlindirnar yrðu áfram í opinberri eigu. Hefði það ekki verið gert hefðu auðlindirnar verið í eigu HS Orku, og því raunverulegur möguleiki á að þær kæmust í meirihlutaeigu útlendinga. Bæjaryfirvöld hafna því að samningur bæjarins við HS Orku sé ekki í anda laganna. Hann sé þvert á móti algerlega samkvæmt lögum og í þeirra anda. Það staðfesti bæði lögmenn og þingmenn sem staðið hafi að lagasetningunni.- bj
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira