Tóku út upplýsingar um skuldir Actavis 3. nóvember 2009 06:30
Seðlabanki Íslands bað um frestun útgáfu skýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda. Til stóð að birta skýrsluna um miðjan dag í gær, en árdegis kom tilkynning frá AGS um að útgáfu hefði verið frestað. Engar skýringar fylgdu eða ný tímasetning útgáfu. Heimildir blaðsins í höfuðstöðvum AGS í Washington herma að beiðni um frestun útgáfunnar hafi komið frá Íslandi og að skýrslan verði birt jafnskjótt og stjórnvöld hér gefi grænt ljós á útgáfuna. Í Seðlabanka Íslands fengust þær upplýsingar að þar á bæ hafi starfsmenn við yfirferð á málinu komist að því að skoða þyrfti betur tilteknar afmarkaðar upplýsingar sem komið hafi fram í skýrslunni. Seðlabankinn hafi því farið fram á það við AGS að útgáfu skýrslunnar yrði frestað. Samkvæmt heimildum blaðsins voru upphaflega í skýrslunni upplýsingar um erlendar skuldbindingar samheitalyfjarisans Actavis og gjalddagar á lánum fyrirtækisins á næstunni. Birting slíkra upplýsinga stangast á við íslensk lög og voru þær fjarlægðar. Actavis skuldaði rúma 3,9 milljarða evra, jafnvirði sjö hundruð milljarða króna, í lok síðasta árs, samkvæmt ársreikningi. Lánin öll eru í skilum, samkvæmt upplýsingum frá Actavis. Skoðun Seðlabankans lauk í gær og boðum var komið til AGS um að gefa mætti út skýrsluna. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér er ekki óalgengt að stjórnvöld ríkja biðji um frestun á útgáfu skýrslna AGS, en á frestun sé ekki fallist nema að svigrúm þurfi til að leiðrétta staðreyndavillur, eða gæta að því að ekki verði birt viðkvæm gögn sem skaðað geti markaði. - óká / jab
Mest lesið Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira