Enski boltinn

Rooney setur stefnuna á markamet með Englandi

Ómar Þorgeirsson skrifar
Wayne Rooney í landsleik með Englandi.
Wayne Rooney í landsleik með Englandi. Nordic photos/AFP

Framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United hefur viðurkennt að hann hafi sett sér það takmark að verða markahæsti leikmaður enska landsliðsins frá upphafi.

Hinn 23 ára gamli Rooney hefur þegar skorað 25 mörk í 55 landsleikjum en metið á Sir Bobby Charlton en hann skoraði 49 mörk á landsliðsferli sínum.

„Ég talaði við Sir Bobby í síðustu viku um metið og það að skora fyrir England og það yrði óneitanlega draumur fyrir mig að ná að slá metið. Það yrði frábært ef tveir leikmenn Manchester United væru í tveimur efstu sætunum.

Ekki má samt útiloka Michael [Owen] því hann á enn góðan möguleika á að sla metið á undan mér," segir Rooney í viðtali við Daily Star en Owen hefur skorað 40 mörk í 89 landsleikjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×