Enski boltinn

Negredo mætir til viðræðna við Hull

Ómar Þorgeirsson skrifar
Alvaro Negredo.
Alvaro Negredo. Nordic photos/AFP

Knattspyrnustjórinn Phil Brown hefur staðfest að framherjinn Alvaro Negredo mæti til viðræðna við Hull í vikunni út af fyrirhuguðum félagsskiptum hans frá Real Madrid.

Hull er búið að vera á höttunum eftir Negredo í allt sumar en félög á borð við Roma og Real Zaragoza eru einnig sögð fylgjast náið með gangi mála hjá hinum 23 ára gamla Spánverja.

Negredo er ekki talinn eiga mikla möguleika á að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Real Madrid eftir eyðslu spænska félagsins í sumar og því séu Madridingar tilbúnir að selja leikmanninn og hefur 12 milljón punda verðmiði verið nefndur til sögunnar.

Það virðist þó ekki slá Hull út af laginu og Brown er enn vongóður um að fá sinn mann á KC-leikvanginn.

„Hann mætir vonandi til þess að horfa á næsta leik okkar og síðan sjáum við til hvað gerist. Ég er alla vega vongóður þó svo að það sé aldrei gæfulegt að fagna of snemma í svona málum," segir Brown í samtali við Hull Daily Mail.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×