Enski boltinn

West Ham semur við Ilunga

Nordic Photos/Getty Images

West Ham hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Herita Ilunga frá franska félaginu Toulouse og hefur hann skrifað undir samning til ársins 2013.

Ilunga er 27 ára gamall og kemur frá Kongó. Hann gekk í raðir West Ham á lánssamningi síðasta sumar en hefur átt fast sæti í liðinu allar götur síðan. Hann hefur þar að auki skorað tvö mörk í bikarkeppnunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×